Myndin hefst á orðum Bush þar sem hann segir: "The only thing I know for sure is that these are bad people" Ef þetta er það sem Bush vissi fyrir víst, þá gef ég ekki mikið fyrir ágiskanir hans. Í raun má segja að markmið myndarinnar sé að afsanna þessi orð Bush og í raun einnig orð Rumsfeld um að mannréttindalög hafi ekki verið brotin í Guantánamo.
Bandaríkin eru í stríði við öfgamenn sem segjast berjast í nafni Guðs en þegar á myndina líður á maður ávallt erfiðara með að sjá muninn á íslömskum öfgamönnum og hermönnum Bandaríkjanna. Í raun virðast Bandaríkin ekki aðeins vera í stríði gegn hryðjuverkum heldur einnig í heilögu stríði gegn islam og menningu múslima. Mikið er gert úr því hvernig trú múslimanna er hædd, þeim er refsað fyrir að leggjast á bæn, Kóraninum er sýnd vanvirðing og það er ýjað að því að þeir geti ekki verið vesturlandabúar ef þeir iðki trú sína. Ef markmiðið var að draga úr trúarsannfæringu drengjanna þá virðist það hafa farið fyrir ofan garð og neðan. Einn þeirra segist meira að segja hafa lítið sinnt trú sinni fyrr en eftir þessa reynslu.
En fordóma er ekki aðeins að finna hjá þeim sem birtast í myndinni. Áhugavert er að lesa umræður á netinu. Þar virðist fólk skiptast í tvær fylkingar, þá sem eru reiðir yfir því sem gerðist og þá sem sjá ekkert athugavert við framferði Bandaríkjamanna, enda hafi múslimar ráðist á Bandaríkin fyrst. Allir múslimar eru því lögleg skotmörk eftir 11. sept. Svona viðbrögð fékk mann til að leiða hugann að því hvað þetta sama fólk myndi segja ef kristinn maður væri pyntaður vegna þess að hann lagðist á bæn, eða Biblía hans væri vanvirt. Maður veltir því fyrir sér hvort trúfrelsið hafi líka hrunið 11. september eins og turnarnir tveir.
Það er margt sem minnir á helförina í myndinni. T.d. þegar hópi manna er safnað saman í gám þar sem þeir eru við það að kafna. Síðan er skotið á gáminn með þeim afleiðingum að meirihluti þeirra sem eru í honum láta lífið. Við þetta bætast hrottalegar pyntingar, niðurlæging og svelti.
Mennskan er þó ekki gjörsamlega glötuð. Fangarnir fá smátt og smátt betri meðferð í Guantánamo, eftir því sem hermennirnir og fangarnir kynnast betur og í myndinni er að finna fallega senu þar sem bandarískur hermaður hjálpar einum drengjanna þegar hættuleg kónguló kemst inn í búrið hans. En þetta eru nánast undantekningar sem sanna regluna. Svo virðist sem mennskan hafi að mestu einnig hafa hrunið með turnunum tveimur.