Greining á trúar- og siðferðisstefjum:
Í kvikmyndinni Yi ge dou bu neng shao (Not One Less) eru ekki mörg trúarstef. Þar er þó að finna gildismat og siðferðisstef sem eru áhugaverð. Gildi einstaklingsins og umhyggjan fyrir honum er sett í öndvegi í myndinni. Umhyggja forfallakennarans unga fyrir nemanda sínum er einstök og einurð hennar við að leita hans aðdáunarverð. Einn drengur í milljónahafinu verður allt í einu mikilvægari en allt annað. Ekkert annað kemst að en að finna hinn týnda. Þá er fátækt og afleiðingar hennar sett í brennidepil. Ennfremur lýsir myndi vel fátæklegum aðstæðum í skólum í afskekktum héruðum Kína. Borgarsamfélaginu og dreifbýlinu er á vissan hátt stillt upp sem andstæðum. Fátækt fólk í dreifbýlinu flýr aðstæður sínar og fer til borgarinnar í leit að atvinnu. Þar eru börn ekki undanskilin. Í borginni bíður þeirra þó oft ekkert annað en betl. Fjölmiðlar og hlutverk þeirra koma einnig við sögu og dregur myndin vel fram áhrifamátt þeirra og ábyrgð.
Eitt af því sem gerir myndina Yi ge dou bu neng shao áhugaverða út frá guðfræðilegum sjónarhóli er hve hún felur í sér sterka hliðstæðu við dæmisögu Jesú um týnda sauðinn, einkum í útgáfu Matteusarguðspjalls (18.12-14) þar sem sagan er sett í safnaðar- eða samfélagssamhengi. Forfallakennarinn ungi skilur nemendahópinn sinn eftir þegar einn úr honum er týndur og fer að leita og gefst ekki upp fyrr en hann er fundinn. Nemendurnir eru reyndar ekki skildir eftir ábyrgðarlausir þar sem þeir aðstoða kennarann sinn við að komast til borgarinnar. Það verða líka fagnaðarfundir þegar hún snýr aftur með týnda nemandann. „Og auðnist honum að finna hann, þá segi ég yður með sanni, að hann fagnar meir yfir honum en þeim níutíu og níu, sem ekki villtust frá. Þannig er það eigi vilji yðar himneska föður, að nokkur þessara smælingja glatist" (Mt 18.13-14).