Greining á trúar- og siðferðisstefjum:
Ekki er hægt að finna beinar skírskotanir til trúarstefja í þessari mynd. Það helsta sem minnir á það eru tvö atriði þar sem Biblían (sem gjöf frá Gídeonfélaginu) kemur fyrir, en í öðru tilfellinu er Biblían opnuð á bókinni Leviticus. Hugsanlegt er að það hafi einhverja sérstaka skírskotun, en það er a.m.k. ekki ljóst við fyrstu sýn. Á hinn bógin má e.t.v. finna ákveðin siðferðileg stef hérna og vangaveltur um samvisku og samviskuleysi, um það hvernig fólk getur misnotað þá sem minna mega sín og e.t.v. lítil tök á veruleikanum, jafnvel til að vinna illvirki.