Í fyrsta þætti 5. ártíðar af Angel kemur fyrir persóna sem heitir Eva. Þegar hún kynnir sig tekur hún upp epli og kastar til einnar aðalpersónunnar, svona til að undirstrika tengslin (og grafa undan þeim). Eva er fulltrúi „the senior partners“ og tengiliður þeirra við Angel og co.
Ps. Svona til áréttingar þá hef ég hugsað mér að nota bloggið/glósurnar hér á dec-vefnum til að punkta niður atriði eins og þetta, eitthvað sem verðskuldar að því sé haldið til haga, en kallar ekki endilega á heildstæða umfjöllun.