Riisuttu mies og prestamyndin

Riisuttu mies er nýjasta kvikmynd finnska leikstjórans Aku Louhimies. Ég var svo heppinn að fá eintak af myndinni frá Finnlandi um daginn sem Juha Kinanen keypti fyrir mig. Hann er forseti ECIC og við hittumst á samnefndri ráðstefnu í Ungverjalandi sem lauk í vikunni.

Myndin greinir frá prestinum Antti sem er orðaður við biskupsembætti þegar biskupinn í stiftinu lætur af störfum. Myndin er gríðarlega áhugaverð fyrir okkur sem erum að vinna með trúarstef í kvikmyndum, ekki síst þá sem hafa áhuga á myndinni af prestum og kirkju í kvikmyndum. Það vakna margar spurningar við áhorfið - eitthvað ratar í þetta áhorfsblogg strax, annað kemur síðar.

Ég ætla annars að fjalla um þessa mynd í erindi um presta í kvikmyndum sem verður flutt á norrænum biskupafundi í byrjun júlí.