Það var að heyra á krökkunum í Háskóla unga fólksins að þau væru spennt fyrir tónlistarmyndböndum. Það þarf í sjálfu sér ekki að koma á óvart þegar haft er í huga að þau eru miðill sem er mikið hugsaður fyrir unglinga. Það kæmi mér heldur ekki á óvart að þau horfðu nokkuð mikið á slík myndbönd. Stúdentar í kvikmyndanámskeiðinu í vor skrifuðu greiningarverkefni um tónlistarmyndbönd og við höfum fjallað heilmikið um þau í Deus ex cinema, m.a. staðið fyrir sjónþingi um tónlistarmyndbönd í Skálholti. Það er full ástæða til að gera meira af því að skoða myndbönd sem þessi og jafnvel mætti hugsa sér að útbúa kennsluleiðbeiningar um nokkur slík. Það er eitt af því sem við ættum að huga að.