Flokkunarkerfið

Við Þorkell höfum verið að kynna flokkunarkerfi Deus ex cinema nokkrum sinnum upp á síðkastið. Ég fjallaði um það á námskeiði með prestum á Héraði í desember á síðasta ári, við Keli kynntum það á Biblical Variations ráðstefnunni í janúar, svo fórum við í gegnum það með nemendum í guðfræði/kvikmyndanámskeiði í guðfræðideild. Ég kynnti það líka stuttlega fyrir stjórn NKS. Á morgun ætla ég svo að ræða það við nemendur í Háskóla unga fólksins.

Í þessari vinnu hefur smátt og smátt orðið til heilmikið safn af sýnidæmum sem má nota til að ræða um einstaka flokka í kerfinu. Ég velti fyrir mér þegar ég fór yfir þetta í kvöld hvort ég ætti ekki að taka smá tíma í júlí eða ágúst og útbúa enn fleiri sýnidæmi sem mætti nota til að fara virkilega ítarlega í kerfið okkar (jafnvel út frá umfjöllunum á Dec-vefnum). Þannig mætti nota kerfið til að kynna þetta svið.

Kannski er hér komið efni í áhugaverða grein eða jafnvel greinasafn á vefnum sem við félagarnir gætum skrifað (Keli hefur þegar skrifað eina um kerfið). Við sjáum til.