Pollyanna, kristsgervingur

Baldur Kristjánsson bloggar um Pollýönnu sem hann sér sem kristsgerving:

Hún ert kristgervingur eins og fínu guðfræðingarnir myndu segja. (Hún deyr að vísu ekki en hún lamast og það lítur út fyrir að hún muni rísa upp).Þarna var allt t.d. prestur sem skreið fyrir hinu veraldlega valdi, bukkaði sig og beygði fyrir ráðandi öflum en uppgötvaði fyrir rest fyrir tilstilli lítillar stúlku hvað til hans friðar heyrði.

Við sáum gleðisnautt og staðnað samfélag breytast í gleðiríkt samfélag vináttu, virkni og samhjálpar.