Sænska kvikmyndin Ondskan var sýnd í sjónvarpinu sunnudaginn 10. júní. Þetta er nokkuð mögnuð mynd um afleiðingar ofbeldis - líkamlegs og andlegs. Það er nokkuð magnað atriði um miðbik myndarinnar sem sýnir stjúpföður Erik (sem er aðalpersóna myndarinnar) beita hann ofbeldi. Þessi sena lýkur í raun upp myndinni fyrir áhorfandanum því hún skýrir persónu Erik og dýpkar hana töluvert.
Atriði er flott klippt. Undir borðum rífast Erik og stjúpfaðirinn og sá síðarnefndi lýkur samræðunni með því að segja að þeir þurfi að tala saman eftir kvöldmat. Móðirin lítur undan þegar hann segir þetta. Eftir matinn er klippt á móðurina sem situr við píanó og spilar. Úr næsta herbergi heyrast högg.
Þarna er veruleika ofbeldisins komið til skila með áhrifamiklum hætti - töluvert áhrifameiri en ef klippt hefði verið beint á barsmíðarnar frá matarborðinu.