Den brysomme mannen

Í gærkvöldi horfði ég á norsku kvikmyndina Den brysomme mannen. Þetta er athyglisverð kvikmynd, gríðarlega vel tekin og hljóðvinnslan mjög fín. Ég er ekki hissa á því að hún hafi unnið til verðlauna í Gautaborg, en þar vann myndin s.k. Fipresci-verðlaun. Það er heilmikið af trúar- og siðferðisstefjum í þessari mynd, en af einhverjum ástæðum urðu til hugrenningatengsl við Jesúsöguna eftir áhorfið. Það er eitt atriði í myndinni sem minnir reyndar heilmikið á The Passion of the Christ (kannski er það aðallega förðunin). Ég þarf að skoða þetta nánar og glósa þá örugglega eitthvað meira um myndina. Sviðsmynd og söguheimur minntu mig líka á kvikmyndir Jean Pierre Jeunet.

Ritdómari á vef Variey kemst m.a. svo að orði um myndina:
Dialogue never spells out the nature of the world depicted, although the send-up of polite Scandie culture is obvious. Religiously inclined auds might see a vision here of either hell or heaven; others, just an absurdist Beckettian universe with more throw cushions.

Hér er semsagt heilmikið rými fyrir túlkun :)