Existensiell Filmfestival Dalarna haldin í sjötta sinn

Dagana 10.-11. apríl næstkomandi verður haldin afar áhugaverð kvikmyndahátíð í bænum Falun í Svíþjóð. Hátíðin kallast Existensiell Filmfestival Dalarna og þar er lögð áhersla á samtal um samtíma og tilvistarspurningar út frá kvikmyndum. Þema hátíðarinnar í ár er Hræðsla og meðal mynda á dagskrá eru Du Levande, The Others og Pan's Labyrinth.

Meðal þeirra sem taka þátt í og leiða samtalið eru leikstjórinn Roy Andersson sem hefur sent frá sér myndirnar Sånger från andra våningen og Du Levande, Annika Borg, prestur, Maaret Koskinen, prófessor í kvikmyndafræðum, og kvikmyndagagnrýnandinn Emma Gray Munthe.