Danielson: Fjölskyldumynd

Ég sá heimildarmyndina Danielson: A Family Movie í kvöld. Á sýningunni var hópur æskulýðsleiðtoga sem komu með Hans Guðberg og Dæju (þau sjá um Farskóla leiðtogaefna). Á morgun verður svo annar hópur á tónleikum Danielson
í Fríkirkjunni. Þetta er nokkuð áhugaverð mynd um enn áhugaverðari listamenn (það er í raun rangt að tala um tónlistarmenn því listsköpun Daniel Smith, systkina og félaga er í raun víðtækari en svo. Hér er líka á ferðinni einlægur trúmaður. Ég vonast til að geta tekið við hann stutt viðtal á morgun. Það verður að sjálfsögðu birt hér.