Það var ágætur hópur af Biskupsstofu (ásamt tveimur prestum) sem sá tékknesku myndina Grandhotel í kvöld. Þetta er flott mynd, vel tekin, vel leikin, vel leikstýrt. Sagan er líka skemmtileg og fléttar saman veðurathuganir, afskekkt hótel, línuritagerð og hugljúfa rómantíska fléttu. Ég get hiklaust mælt með henni. Leikstjórinn David Ondricek svaraði spurningum að sýningu lokinni ásamt aðalleikonu myndarinnar. Þau buðu bæði af sér góðan þokka.
Ps. Ondricek ræðir um kvikmyndagerð sína í hádeginu á fimmtudag. Ég held að aðgangur sé ókeypis.