Hátíðin heldur áfram

Í gær sá dómnefndin þrjár myndir þannig að nú erum við búin með þriðjung myndanna í Vitranaflokkinum. Í dag sjáum við aðrar þrjár og þá er þessi vegferð rúmlega hálfnuð. Myndirnar eru mjög ólíkar og það er fróðlegt að sjá hvað dagskrárstjórinn hefur valið í þennan pott. Sumar eru frumlegrar, aðrar hefðbundnari, margar á einhvern hátt ögrandi. Það verður ekki bloggað um einstakar myndir hér fyrr en við höfum valið, þá er ekki ósennilegt að bíóglósur rati á vefinn og jafnvel einhverjar umfjallanir.