Þið, lifendur og Heima

Á fyrsta degi kvikmyndahátíðarinnar sá ég tvær myndir.

Fyrst var það sænska myndin Du, levande sem kemur úr smiðju stílsnillingsins Roy Andersson. Hún var sýnd í stað Shotgun Stories sem átti að vera fyrsta mynd hátíðarinnar í ár. Filman var ekki komin til landsins og því var brugðið á það ráð að sýna hina. Þetta er hin athyglisverðasta mynd og það er engin ástæða til að láta hana fram hjá sér fara. Ég punktaði heilmikið hjá mér og ef tími gefst til ratar eitthvað af því kannski á vefinn.

Síðari mynd dagsins var Heima sem var opnunarmynd hátíðarinnar. Hún kom mér á óvart. Myndin er gríðarlega vel tekin - mörg skot eru svo flott að ég væri alveg til í að hafa þau upp á vegg hjá mér. Mér fannst þetta í raun vera tilraun til að skilgreina eða hugsa um hvað það er að vera Íslendingur (speglað í tónlist Sigur Rósar, íslenskri náttúru, fólki og ýmsum smáatriðum). Þessi mynd á örugglega eftir að reynast frábær landkynning og hún gæti aukið á dulúðina sem manni finnst Ísland stundum sveipað.

Hátíðin fer vel af stað, á morgun sjáum við Ferð Isku, Heimsókn hljómsveitarinnar og Tómar.

Viðbót
Vefur Du, levande
Umfjöllun um Du, levande