Sigríður Pétursdóttir - sem eiginlega er þekkt sem Sigga okkar í Deus ex cinema - hefur um árabil haldið úti vef um kvikmyndir á www.kvika.net. Og nú er hún komin í útvarpið með samnefndan þátt. Í fyrsta þættinum spjallar hún við Hrönn Marinósdóttur og Atla Bollason sem standa að Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík. Í þættinum er líka kvikmyndagetraun (nei, ég átta mig ekki á því úr hvaða mynd þetta er - en Keli hlýtur að vita það - mundi þó að bæjarnafnið er Cherbourg).
Siggu ferst þetta vel úr hendi og það verður gaman að fylgjast með næstu þáttum.