Í gær frumsýndi Síminn nýja auglýsingu fyrir þriðju kynslóðar farsíma. Auglýsingin sýnir Jesús og Júdas ræðast við í myndsíma. Hvað sviðsmynd og framsetningu varðar kallast hún á við nýlegar Jesúmyndir eins og The Passion of the Christ og The Gospel of John, tónninn í henni er gamansamur sem minnir á The Life of Brian og nokkur af lokaskotunum í auglýsingunni eru endurgerð á kvöldmáltíðarfresku Leonardo da Vinci.
Það væri gaman að greina auglýsinguna í ljósi Jesúmyndahefðarinnar. Ekki síður er fróðlegt að fylgjast með viðbrögðunum. Hér ætla ég að reyna að safna saman vísunum í efni á íslenskum vefmiðlum þar sem fjallað er um auglýsinguna.
Mbl.is: Biskup segir nýja auglýsingu Símans smekklausa
Vísir.is: Auglýsing Símans er ósmekkleg - Biskupsstofa
Vísir.is: Biskup var búinn að blessa auglýsingar
Salvör Gissurardóttir: Jesúsímabrandari Símans er þaulhugsuð auglýsing
Baldur Kristjánsson: Mynd Leonardo da Vincy -ómöguleg uppstilling!
Rúv.is: Umdeild auglýsing símans
Stefán Einar Stefánsson: Af margumræddri auglýsingu Símans
Stefán Pálsson: Guðlast?
Bryndís Ísafold Hlöðversdóttir: Húmorsleysi trúaðra?
Arna Schram: Síminn, auglýsingar og kirkjan
Stefán Friðrik Stefánsson: Umdeild auglýsingaherferð Símans hittir í mark
Eggert Sólberg: Stóra Símamálið
Pétur Tyrfingsson: Nú fataðist geistlegum mönnum flugið
Sigurður Þór Guðjónsson: Ég er á móti símaauglýsingunni
Svavar Alfreð Jónsson: Guðlast til sölu
Meira á örugglega eftir að bætast við.