Á vef tímaritsins Partitip@tion er að finna áhugaverða grein eftir Tomas Axelson sem heitir Movies and Meaning: Studying Audience, Fiction Film and Existential Matters. Tomas lauk doktorsprófi frá Uppsalaháskóla fyrr á þessu ári og hann fjallaði um viðtökurannsóknir og tilvistarstef í kvikmyndum í doktorsritgerð sinni. Í þessari grein dregur hann saman nokkrar niðurstöður úr ritgerðinni og setur fram á aðgengilegan hátt.
Á morgun verður málþing í Háteigskirkju um píslarsögur í ólíkum listformum. Ég flyt þar erindi um píslarsögur í kvikmyndum. Nánar tiltekið ætla ég að segja í stuttu máli frá píslarsögunni í heimildarmyndinni Super Size Me.
Í kvöld hitti ég nemendur í farskóla leiðtogaefna. Við ætlum að ræða saman um trúarstef í kvikmyndum og ég hyggst kynna fyrir þeim það sem við höfum verið að gera í Deus ex cinema. Farskólastjórarnir hafa sagt mér að þetta sé skemmtilegur og líflegur hópur svo ég hlakka bara heilmikið til.
Mér datt í hug að safna hér saman nokkrum vísunum fyrir þau:
Kennslubækur um trú og siðferði í kvikmyndum: www.dec.is/is/efni/58
Umfjöllun um Love Actually: http://dec.is/is/love_actually
Umfjöllun um Magnolia: http://dec.is/is/efni/3136
Dagana 10.-11. apríl næstkomandi verður haldin afar áhugaverð kvikmyndahátíð í bænum Falun í Svíþjóð. Hátíðin kallast Existensiell Filmfestival Dalarna og þar er lögð áhersla á samtal um samtíma og tilvistarspurningar út frá kvikmyndum. Þema hátíðarinnar í ár er Hræðsla og meðal mynda á dagskrá eru Du Levande, The Others og Pan's Labyrinth.
Ég fór til Akureyrar á mánudaginn var og hitti þar unglinga sem taka þátt í KNS starfi á vegum Akureyrarkirkju og Glerárkirkju. Þau eru öll nemendur í MA eftir því sem ég kemst næst. Ég ræddi við þau um trúarstef í kvikmyndum og kynnti ólíkar tegundir slíkra stefja. Umræður voru líflegar og það komu margar góðar spurningar. Þetta er spennandi starf sem Pétur Björgvin og Sólveig Halla halda utan um.
Nokkrar myndir
Ég ætla að safna áhugaverðum umsögnum um Listina að gráta í kór saman í þessa bloggfærslu.
Ég sá heimildarmyndina Danielson: A Family Movie í kvöld. Á sýningunni var hópur æskulýðsleiðtoga sem komu með Hans Guðberg og Dæju (þau sjá um Farskóla leiðtogaefna). Á morgun verður svo annar hópur á tónleikum Danielson
Það var ágætur hópur af Biskupsstofu (ásamt tveimur prestum) sem sá tékknesku myndina Grandhotel í kvöld. Þetta er flott mynd, vel tekin, vel leikin, vel leikstýrt. Sagan er líka skemmtileg og fléttar saman veðurathuganir, afskekkt hótel, línuritagerð og hugljúfa rómantíska fléttu. Ég get hiklaust mælt með henni. Leikstjórinn David Ondricek svaraði spurningum að sýningu lokinni ásamt aðalleikonu myndarinnar. Þau buðu bæði af sér góðan þokka.
Ps. Ondricek ræðir um kvikmyndagerð sína í hádeginu á fimmtudag. Ég held að aðgangur sé ókeypis.
Í gær sá dómnefndin þrjár myndir þannig að nú erum við búin með þriðjung myndanna í Vitranaflokkinum. Í dag sjáum við aðrar þrjár og þá er þessi vegferð rúmlega hálfnuð. Myndirnar eru mjög ólíkar og það er fróðlegt að sjá hvað dagskrárstjórinn hefur valið í þennan pott. Sumar eru frumlegrar, aðrar hefðbundnari, margar á einhvern hátt ögrandi. Það verður ekki bloggað um einstakar myndir hér fyrr en við höfum valið, þá er ekki ósennilegt að bíóglósur rati á vefinn og jafnvel einhverjar umfjallanir.