Glósur

Angel 1:9 og helförin

  • Kynþáttahatur
  • Heilagt stríð
  • Helför
  • Nasismi
  • Á ég að gæta bróður míns
  • Hetja
  • Gjöreyðingarvopn
  • Að fórna sér fyrir aðra, að láta lífið fyrir aðra

Þessi þáttur er mjög áhugaverður með tilliti til hliðstæðu við helförina. Hersveit ára sem kallast The Scourge klæðist búningum sem minna á þýska hermenn. Það gæti verið fróðlegt að skoða þáttinn út frá þessu og jafnvel bera hann saman við Star Trek þætti sem eru svipaðir að uppleggi.

Angel 1:8 og 1:9 - Freistingar og frelsarar

- Freistingarsaga
- Angel þarf að velja milli þess sem hann þráir helst í heiminum (að vera með B) og þess sem hefur til þessa verið köllun hans og örlög (að bjarga heiminum).

Lokuð umræðutorg

Á Drupal vefnum er fjallað um það hvernig hægt er að læsa umræðutorgum þannig að bara tiltekinn hópur hafi aðgang að þeim. Við höfum líklega þörf fyrir eitthvað slíkt hér á vefnum, svo það er full ástæða til að glósa þetta.

Den brysomme mannen

Í gærkvöldi horfði ég á norsku kvikmyndina Den brysomme mannen. Þetta er athyglisverð kvikmynd, gríðarlega vel tekin og hljóðvinnslan mjög fín. Ég er ekki hissa á því að hún hafi unnið til verðlauna í Gautaborg, en þar vann myndin s.k. Fipresci-verðlaun. Það er heilmikið af trúar- og siðferðisstefjum í þessari mynd, en af einhverjum ástæðum urðu til hugrenningatengsl við Jesúsöguna eftir áhorfið.

Six Feet Under: Himnaríki

Í lokaþætti Six Feet Under er að finna mjög áhugaverða senu sem minnir á himnaríki. Sögupersónurnar sitja við veisluborð, skiptast á sögum og rifja upp góðar stundir.

Six Feet Under: Samviska og undirmeðvitund

Ein áhugaverð nálgun við Six Feet Under gæti verið sú að skoða þættina í ljósi hugmynda um samviskuna og/eða undirmeðvitundina. Það eru ekki síst sýnir og draumar einstakra persóna í þáttunum sem væri áhugavert að skoða svona.

Nýtt lén, nýtt kerfi

Í vikunni skráðum við nýtt lén fyrir Deus ex cinema: dec.is og nú höfum við hafist handa við að setja upp vefumsjónarkerfi á nýjum vefþjóni sem vonandi mun duga okkur vel. Næstu vikur og kannski mánuðir fara í að fínpússa kerfið og flytja öll gögn af gamla vefnum (sem fær þó áfram að lifa eins og hann stendur). Samfara þessu ætlum við að setja upp enska útgáfu vefsins. Ég mun nýta þennan annál til að segja frá þessari vinnu og til að blogga um áhorf og sitthvað fleira.

Syndicate content