Glósur

Hátíðargusan 2007

Ég tilheyri þeim hópi kvikmyndagerðarmanna sem væri hægt að kalla sjálfstæðan kvikmyndagerðarmann. Ég geri ekki auglýsingar, ég rek mitt fyrirtæki og geri mínar eigin myndir. Svokallaðar "listrænar kvikmyndir", eins og eru sýndar hér á hátíðinni.

Þetta sagði Grímur Hákonarson, leikstjóri, í upphafi hátíðargusu sinnar. Gusan er ómissandi hluti af Alþjóðlegri kvikmyndahátíðar í Reykjavík. Lesið gusuna á Landi og Sonum.

Þið, lifendur og Heima

Á fyrsta degi kvikmyndahátíðarinnar sá ég tvær myndir.

Fyrst var það sænska myndin Du, levande sem kemur úr smiðju stílsnillingsins Roy Andersson. Hún var sýnd í stað Shotgun Stories sem átti að vera fyrsta mynd hátíðarinnar í ár. Filman var ekki komin til landsins og því var brugðið á það ráð að sýna hina. Þetta er hin athyglisverðasta mynd og það er engin ástæða til að láta hana fram hjá sér fara. Ég punktaði heilmikið hjá mér og ef tími gefst til ratar eitthvað af því kannski á vefinn.

Prestur og hjónavígsla í Tru Calling

Í lokaþætti fyrstu ártíðar Tru Calling gengur ein af aukapersónunum, Lindsey, í hjónaband. Prestur gefur þau saman. Atriðið hefst á 6. mínútu. Þetta er hefðbundin hjónavígsla í kvikmynd. Presturinn sem slíkur er ekki aðalatriði heldur hluti af sviðsmynd eða umgjörð frásagnarinnar.

Útvarpskvika

Sigríður Pétursdóttir - sem eiginlega er þekkt sem Sigga okkar í Deus ex cinema - hefur um árabil haldið úti vef um kvikmyndir á www.kvika.net. Og nú er hún komin í útvarpið með samnefndan þátt. Í fyrsta þættinum spjallar hún við Hrönn Marinósdóttur og Atla Bollason sem standa að Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík. Í þættinum er líka kvikmyndagetraun (nei, ég átta mig ekki á því úr hvaða mynd þetta er - en Keli hlýtur að vita það - mundi þó að bæjarnafnið er Cherbourg).

Köllun í Tru Calling

Það hlaut að koma að því að köllunarhugtakið væri rætt í Tru Calling. Það er gert í lok fimmta þáttar og verður væntanlega tekið upp í byrjun þess sjötta. Davis hefur orð á þessu, talar um það sem hún gerir sem köllun.

Endurlausnarstef í Tru Calling

Í fyrstu fjórum þáttunum í sjónvarpsþáttaröðinni Tru Calling er nokkrum sinnum vísað til endurlausnar sem uppgjörs við fortíðina (meðal annars er notað orðalagið „letting go of the past“). Það gæti verið fróðlegt að skoða þessa þætti nánar í þessu ljósi, þ.e. út frá þörf Tru til að gera upp við morðið á móður sinni. Sjá sérstaklega lokamínúturnar í fjórða þætti.

Jesúauglýsing Símans

Jesús í auglýsingu Símans

Í gær frumsýndi Síminn nýja auglýsingu fyrir þriðju kynslóðar farsíma. Auglýsingin sýnir Jesús og Júdas ræðast við í myndsíma. Hvað sviðsmynd og framsetningu varðar kallast hún á við nýlegar Jesúmyndir eins og The Passion of the Christ og The Gospel of John, tónninn í henni er gamansamur sem minnir á The Life of Brian og nokkur af lokaskotunum í auglýsingunni eru endurgerð á kvöldmáltíðarfresku Leonardo da Vinci.

Prestar í sjónvarpsþáttum

Ég rakst á atriði úr Fóstbræðrum á YouTube þar sem getur að líta prest.


Flanders

Peter Chattaway bloggar um viðbrögðin við því hvernig Ned Flanders
er sýndur í nýju Simpsons kvikmyndinni og rekur sögu hans. Þarna er m.a. að finna tilvísanir í Jobsstefin í persónu Flanders.

Simpsons og trúarstefjafræðsla

Þessa dagana er fylgst með Simpsons fjölskyldunni hér á heimilinu. Þættirnir eru uppfullir af áhugaverðum trúar- og siðferðisstefjum og ég hef reynt að glósa það sem fyrir augu ber. Í því samhengi velt ég fyrir mér hvort ekki væri ráð að útbúa lista yfir þætti sem má skoða nánar og kalla eftir umfjöllunum um þá hér á vefnum. Það mætti jafnvel hugsa sér að gera lista yfir þætti sem gætu nýst í umfjöllun eða útlagningu á lykilatriðum guðfræðinnar.

Syndicate content