Hér er um hefðbundna heimsslitamynd að ræða af samameiði ogzombíumyndirnar. Ógurleg plága ógnar allri tilverunni þannig að jafnvelnánustuvinir manns geta orðið lífshættulegir. Áhersla er lögð á heimsslitastefiðmeð þvíað sýna veggskrift í kirkju: "Endirinn er alveg andskoti nálægur." Kirkjaþessi erreyndar full af sýktu fólki sem reyna að drepa aðalsöguhetjuna og ferpresturinnþar fremstur í flokki.
Eins og ávallt í svona myndum ber að forðast myrka staði og er hættanalltaf mest ánóttunni. Andstæða ljóss og myrkurs sem tákn fyrir hið góða og illa ersígilt. Krákakemur einnig fyrir í myndinni og að vanda boðar hún illt.
Kirkjusálmar gegna einnig veigamiklu hlutverki í myndinni og er t.d. lagiðAve Maríasungið þegar hver hörmungin er sýnd á fætur annarri. Þá er hinn frægisálmur AbideWith Me sunginn og jólalag leikið. Allt á þetta auðvitað að vera voðalegadjúpt ogáhrifaríkt en er í raun aðeins tilgerðalegt.
Það versta við myndina er hins vegar boðskapur hennar − eða kannskiölluheldur skortur á boðskap. Hún byrjar reyndar vel. Ofbeldið er tengtvísindunum oggefið í skyn að ofbeldið eigi uppruna sinn í þekkingarleitinni, sbr.skilningstrégóðs og ills í sögunni af Adam og Evu. Þá er einnig bent á það að morðhafi alltaffylgt mannkyninu og því sé ástandið eftir pláguna lítið breytt frá því semáður var.Myndin virðist því framan af vera ádeila á ofbeldi almennt.
Þegar líður á myndina er þeirri spurningu velt upp hvort það samfélag semhafi þaðlögmál að leiðarljósi að aðeins þeir hæfustu komist af geti þrifist. Alltlofaðiþetta góðu og virtist boðskapurinn kristallast í samstöðu ofareiginhagsmunum.
En svo fer eitthvað úrskeiðis um miðbik myndarinnar því að þá er eins ogallt þettagleymist og áður en við vitum er hátterni aðalpersónanna orðið næstasvipað hátternihinna sýktu án þess þó að þeir hafi náð að smita þær. Það má vera aðboðskapurmyndarinnar hafi átt að vera sá að það sé í raun enginn munur á hinumsýktu ogheilbrigðu. Ef það var tilgangurinn þá komst sá boðskapur tæpast til skilaþví aðekkert var unnið með það frekar í lok myndarinnar.