Horft verður á samnefnda kvikmynd eftir danska leikstjórann Niels Arden Oplev, þann sama og leikstýrði myndunum Karlar sem hata konur og Stúlkan sem lék sér að eldinum. Bjarni Randver Sigurvinsson, háskólakennari flytur stuttan formála að myndinni en að lokinni sýningu hennar verður boðið upp á umræður.
Hvað einkennir kvikmyndagerð Milos Forman? Hvaða efni fæst hann helst við í kvikmyndum sínum? Hvernig birtast trúarleg stef í kvikmyndum hans? Þessar og fleiri spurningar verða ræddar í kvöldkirkjubíói í Dómkirkjunni fimmtudaginn 24. september.
Existentiell Filmfestival i Dalarna verður haldin 2. og 3. apríl næstkomandi. Þetta er í sjöunda sinn sem hátíðin er haldin. Hér er á ferðinni öðruvísi kvikmyndahátíð þar sem tilvistarstef og samræða eru sett í öndvegi. Að þessu sinni er hátíðin haldin undir yfirskriftinni „Hrun og endurnýjun“ (Sammanbrott och förnyelse á frummálinu).
Hvernig fer starf dómnefnda kirknanna á kvikmyndahátíðum fram? Hvers konar kvikmyndir hafa verið verðlaunaðar upp á síðkastið? Arnfríður Guðmundsdóttir og Árni Svanur Daníelsson hittust á dögunum og ræddu saman um kvikmyndaverðlaun og kvikmyndahátíðir. Bæði hafa setið í dómnefnd íslensku kirkjunnar auk þess sem Arnfríður situr í dómnefnd sænsku kirkjunnar á kvikmyndahátíðinni í Gautaborg sem hefst á morgun.
Finnska prestamyndin Afklæddur maður — Riisuttu mies verður sýnd í Kirkjubíói í Grafarvogskirkju fimmtudaginn 15. janúar. Myndin fjallar um prestinn Antti Pitkänen sem stendur í stríðu í sínum litla söfnuði í borginni.
Trúarstef í kvikmyndum verður viðfangsefni Kirkjubíós í Grafarvogskirkju fimmtudaginn 6. nóvember næstkomandi kl. 19:30. Þá ætlar sr. Árni Svanur Daníelsson að fjalla um það hvernig trú og trúarstef birtast í kvikmyndum. Þetta verður fyrirlestur í léttum dúr og fullt af sýnidæmum.
Kvikmyndin Snjór eftir leikstjórann Aida Begic hlaut Kvikmyndaverðlaun Þjóðkirkjunnar sem voru veitt í þriðja sinn á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík 2008. Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, veitti verðlaunin í lokahófi hátíðarinnar.
Mánudaginn 29. september kl. 15, heldur Dr. Ulrike Vollmer fyrirlestur á vegum Guðfræðistofnunar í stofu 229 í Aðalbyggingu HÍ. Fyrirlesturinn ber heitið: Visual Art and Spirituality: Twin Paths to the Divine? og fjallar um tengsl kvikmynda og trúarlífs. Fyrirlesturinn fer fram á ensku og er öllum opinn.
Kvikmyndaverðlaun kirkjunnar verða veitt í þriðja skipti á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík sem hefst á fimmtudaginn kemur. Verðlaunin hlýtur framúrskarandi kvikmynd sem þykir vekja með áhorfendum áhugaverðar tilvistarspurningar. Fjögurra manna dómnefnd velur verðlaunamyndina.
Kvikmyndin er einn mikilvægasti miðill samtímans og bíómyndir og sjónvarpsþættir eru stór hluti af daglegu lífi okkar allra. Margir líta fyrst og fremst á kvikmyndir sem afþreyingu, aðrir sem listaverk. Góð kvikmynd getur verið hvort tveggja en hún getur jafnframt verið vettvangur fyrir lífsspurningar. Á námskeiðinu "Kvikmyndirnar og lífið" gefst þátttakendum tækifæri til að kynnast og skoða kvikmyndir út frá þessu sjónarhorni.